Tg Raf logo
VerifiedAppliances; Electrical; and Electronics Manufacturing· Founded 2004

Tg Raf

TG raf er löggiltur rafverktaki sem býður upp á faglega og trausta þjónustu við útgerðir, vinnslur, verksmiðjur, byggingarverktaka og önnur fyrirtæki. Lögð er mikil áhersla á vönduð vinnubrögð og að gætt sé að rekstraröryggi viðskiptavinar í hverju skrefi. Á tímum sjálfvirknivæðingar og hagræðingar höfum við hjá TG raf aðstoðað viðskiptavini okkar við þróun inn á stýringar og sjálfvirkni. Áhersla hefur verið lögð á heildarlausn í hverju verkefni fyrir sig þar sem teymi innan fyrirtækisins vinnur að hönnun, teikningu og raflögn ásamt því að sama teymi sinnir viðhaldi í framhaldinu. Mikil hagræðing skapast þannig við vinnu og öll þekking viðhelst innan vinnuteymis í gegnum hönnun, teikningu, raflögn og áframhaldandi viðhaldsþjónustu. Saga TG raf ehf. TG raf byggir á tveimur elstu rafverktökum í Grindavík en þann 1. apríl 2015 sameinuðust fyrirtækin TG raf ehf. og HH-rafverktakar ehf. undir nafni þess fyrrnefnda. Fyrirtækin eiga rætur sínar að rekja allt til 1940 og hafa því þjónustað bæjarbúa og fyrirtæki í Grindavík frá upphafi almennrar rafmagnsnotkunar. Við sameininguna varð til ein sterk heild með yfir 30 rafvirkjum, tæknifræðingum og vélvirkjum sem hefur gefið aukna sérhæfingu og þekkingu í öllum verkefnum. Sérhæfing TG raf hefur legið í þjónustu og breytingum á skipum en einnig í þjónustu við höfn, fiskvinnslu og verksmiðjur ásamt því að aðstoða viðskiptavini sína við þróun inn á stýringar og sjálfvirkni. Eftir sameiningu hefur gefist tækifæri til að styrkja tæknideild félagsins verulega og starfa tæknifræðingar innan teymis rafvirkja í forritun og teikningum. Þjónusta HH-rafverktaka hefur verið almenn rafþjónusta til fyrirtækja og raflagnir í nýbyggingar. Eftir sameiningu hefur gefist tækifæri til að styrkja starfsemina til muna en almennar raflagnir hafa nú verið skilgreindar í sérstaka deild innan fyrirtækisins.

7-day free trial · no credit card

HeadquartersGrindavik, IcelandEmployees3(11 to 50)Founded year2004Websitetgraf.isLinkedIn profileLinkedIn

Verified contacts

3

available on Kipplo

LinkedIn employees

3

11 to 50 range

Open roles

no listings

Distinct roles

2

indexed titles

Tech stack

0

tools in use

Monthly traffic

organic / mo

Sign up free to see all 3 verified contacts at Tg Raf

Free for 7 days · 50 credits · no card · only pay for verified records.

Sign up free

Decision-makers and verified team members

3 contacts with verified email or phone · masked until revealed.

Sign up free →

No verified contacts on record for this company yet.

Top roles at Tg Raf

2 distinct titles indexed · top 2 shown.

  • 1electrical technician
  • 1electrician

Sign up to unlock all 3 contacts at Tg Raf

Free for 7 days · 50 credits · no card · only pay for verified records.

Sign up free

Sign up to reveal 3 verified contacts at Tg Raf

7-day trial · no credit card · cancel anytime · only pay for verified records.

Trusted by sales, marketing, and GTM engineering teams.

Tg Raf | Kipplo Discover