Directory · IS
Public Health in Iceland
A register of firms and the professionals working at them in the Public Health sector based in Iceland. Browse the public index, then filter or export on Kipplo.
Companies
6 on file
Heilsulausnir
Heilsulausnir er fyrirtæki í forvörnum. Stofnað og rekið af tveimur hjúkrunarfræðingum, Stefaníu Ösp Guðmundsdóttur og Andreu Ýr Jónsdóttur. Starfsemi Heilsulausna er tvíþætt: 1: Forvarnarfræðsla fyrir börn og unglinga. Heilsulausnir bjóða upp á fjölbreytt fræðsluefni eins og Vímuefnafræðsluna VELDU, kynheilbrigði, svefn, skjánotkun, samfélagsmiðlar, næring, nikótín og fleira. Allt efni er samið og flutt af hjúkrunarfræðingum þar sem notast er við nýlegar og gagnreyndar heimildir. Lögð er áhersla á notkun áhugahvetjandi samtalstækni í stað þess að vera með boð og bönn. Í öllu fræðsluefni Heilsulausna er uppbygging sjálfsmyndar rauði þráðurinn þar sem kenndar eru aðferðir til að styrkja sjálfsmyndina og fjallað um ágóða þess og mikilvægi að vera með jákvæðra og sterkra sjálfsmynd. 2: Fyrirtækjaþjónusta: Heilsulausnir eru stöðugt að bæta þjónustu við fyrirtæki og hópa þar sem við bjóðum upp á fjölbreyttar heilsufarsmælingar, einstaklingsmiðaða heilsufarsráðgjöf, bólusetningar og ýmis fræðsluerindi. Boðið er upp á skýrslu þar sem fyrirtæki sjá töluleg ópersónugreinanleg gögn um niðurstöður heilsufarsmælinga starfsfólks ásamt áliti hjúkrunarfræðinga. Heilsulausnir hófu starfssemi sína árið 2019 og hafa farið víðsvegar um landið í skóla og fyrirtæki. Heilsulausnir eru einnig í samstarfi við félagasamtök á borð við Krabbameinsfélag Höfuðborgarsvæðisins þar sem unnið er saman að ýmsum verkefnum. Heilsulausnir taka virkan þátt í forvarnarsamfélagi Íslands og halda reglulega erindi á málþingum og ráðstefnum. Heilsulausnir hafa fengið styrki frá t.d. Lýðheilsusjóð.
1 to 10 staff
Veltek - Iceland Health And Welfare Technology Cluster
VELTEK is a health tech cluster dedicated to the implementation of welfare technology in northern Iceland. Our members include 12 municipalities, technology players, universities and leading health organisations.
1 to 10 staff
Kjarni
Hjá Kjarna starfar öflugt teymi sjúkraþjálfara, kírópraktora, naprapata, nuddara og þjálfara sem vinna saman að því að finna árangursríkustu meðferðina fyrir hvern skjólstæðing. Við sameinum alþjóðlega reynslu, faglega þekkingu og fjölbreyttar aðferðir til að greina vandamál og veita vandaða meðferð sem stuðlar að betri heilsu, virkni og lífsgæðum. Áhersla okkar er lögð á ítarlega skoðun og greiningu sem leggur grunn að markvissri meðferð, í nánu samstarfi við skjólstæðinginn þar sem við leitum lausna til bættrar heilsu. Við leggjum ríka áherslu á endurhæfingu, fyrirbyggjandi aðgerðir og aukna hreyfigetu sem stuðla að sjálfbærri vellíðan og virkni í daglegu lífi. Vellíðan og heilsa skjólstæðinga okkar, ásamt virkni þeirra í daglegu lífi, er okkar helsta kappsmál og markmið. Í Síðumúla 28 bjóðum við upp á nútímalegt umhverfi með tækjasal, hóp- og hreyfisal, röntgen myndgreiningartæki og annan búnað sem styður við faglega meðferð. Markmið okkar er skýrt: að hjálpa þér að losna við verki, bæta hreyfigetu og öðlast verkjalaust, sjálfbært daglegt líf.
11 to 50 staff
Svalar
Svalar er ráðgjafastofa sem leggur áherslu á vellíðan á vinnustöðum og býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á því sviði. Svalar hafa komið sér upp gagnlegu efni og verkfærum sem vinnustaðir geta nýtt sér til að styrkja vinnustaðamenningu og líðan starfsfólks. Svalar bjóða upp á námskeið og vinnustofur svo sem um streitu, sálfélagslegt öryggi og vellíðan í vinnu. Einnig er í boði ráðgjöf eða sérsniðin fræðsluerindi og vinnustofur eftir óskum. Eigendur Svala eru: Ingibjörg Loftsdóttir, sérfræðingur í lýðheilsu og stjórnun. Líney Árnadóttir, sérfræðingur í starfsþróun og starfsráðgjöf. Báðar hafa þær mikla reynslu af stjórnun, mannauðsmálum, námskeiðshaldi, fyrirlestrum og markþjálfun.
1 to 10 staff
Embætti Landlæknis
51 to 200 staff
Revolníu
RevolNíu is a start-up founded in January 2023. We want to help people with stress-related problems & tinnitus using well-researched healing sound frequencies, mostly Solfeggio frequencies and dystopian imagery to activate the autonomous sensory meridian response (ASMR). We are creating sounds, designing exceptional headphones, and developing an incredible application to help you stay cool in the chaos.
1 to 10 staff